Með hverri kynslóð koma nýir siðir, nýjar áherslur, ný ásýnd og nýjar þarfir sem kallast á við veruleikann á hverjum tíma. Þannig fær kynslóðin sín sérkenni, setur mark sitt á söguna sem fléttast áfram óhindruð og óumbreytanleg – þetta er sagan okkar.
Lífsgildin taka breytingum því umhverfið breytist stöðugt, þróast í takt við aðstæður á hverjum stað. Kjósum við að hafa áhrif á þessa þróun, eða aðra þætti sem hafa áhrif getum við fremur talað um umbreytingar sem við gerum með vitund og vilja – enda umbreytingarferlið skipulagt og fyrirsjáanlegt.
Þannig geri ég greinarmun á þróun og umbreytingum; hið fyrra er óumflýjanlegt og skýrist af ófyrirsjáanlegu ferli sem verður ekki stjórnað. En umbreytingum getum við stjórnað; gert áætlanir, tímasett, haft áhrif á, aðlagað og samþættað, haft samráð um og skipulagt.
Íslensk ferðaþjónusta þarf að aðlagast að þörfum markaðarins á hverjum tíma. Það er augljós staðreynd og óþarfi að rökstyðja frekar. Ferðaþjónustan hefur þróast í takt við óskir ferðamanna, á forsendum ferðaþjónustunnar; aðlagast að þörfum gestanna sem hafa þarfir er tekið hafa breytingum á síðustu árum. Þannig getum við talað um umbreytingar í eftirspurnarferlinu sem hefur verið hvatinn til aðlögunar í ferðaþjónustunni, en það er eðli viðskiptaþjónustu að leitast við að uppfylla kröfur viðskiptavina með umbreytingum / nýjungum sem verður afurð sem ferðamaðurinn vill kaupa.
Við höfum því ekki getað haft áhrif á þróunina, hún hefur verið óumflýjanleg, en við höfum getað stjórnað þeim umbreytingum sem orðið hafa á sama tíma. Það er forvitnilegt að velta því fyrir sér hvort við hefðum átt að skipuleggja þessar umbreytingar með öðrum hætti en nú er orðið. Gæti staðan verið önnur og betri ef svo væri? Spyrja má hvort stjórnlaus þróun sé æskileg, þegar við getum haft áhrif með jákvæðum umbreytingum.
Skoðaðu nánar: http://www.norema.is