Það er auðvelt að vera vitur eftir á. Hver þekkir ekki þennan málshátt, sem fáir vilja tileinka sér en er vinsæll í dagsins önn. Allar atvinnugreinar þarfnast sérþekkingar og gildir þá einu hvort unnið er við endurskoðun, lögfræði, húsbyggingar, búfræði, tölvufræði, verkfræði, arkitektúr, hjúkrun, lækningar, löggæslu, fiskveiðar og blikksmíði svo einhverjar atvinnugreinar séu nefndar.
Ferðþjónustan er í engu undanskilin þótt ekki upptalin hér fyrir ofan. Þessi ört vaxandi atvinnugrein sem meðal annars þjónar rúmlega 500 þúsund erlendum gestum sem sækja Ísland heim á hverju ári, þarf að nýta sér betur sérþekkingu sem fellur undir FERÐAMÁLAFRÆÐINA til að hámarka árangur af skipulögðu markaðsstarfi sem er greininni lífsnauðsynlegt.
Ég legg til að ferðaþjónustufyrirtækin ráði til sín menntað fólk á þessu sviði og skapi þannig verðmæti innan rekstrareiningarinnar sem nýtast til framtíðar.
Önnur fyrirtæki kjósa frekar að njóta aðstoðar menntaðra ferðamálafræðinga sem hlotið hafa þverfaglega menntun í faginu; sem sameinar með akademískum hætti þau fjölmörgu fagsvið sem leggja grunn að svo víðfemri atvinnugrein.
Sveitarfélög, opinberar stofnanir og fyrirtæki, hafa notið góðs af sérþekkingu á þessu sviði með kaupum á fagþjónustu í ferðamálum; s.s. úttektum og endurmati, rannsóknum og könnunum, skýrslugerð og verkefnaumsjón o.fl.
Skoðaðu nánar http://www.norema.is