Við skipulag ferðamála er nauðsynlegt að gera sér grein fyrir mikilvægi markaðsmála og skilgreina alla áhrifaþætti ferðamálaskipulagningar þ.e. stefnumótunar og/eða áætlunar um umbreytingar í ferðamálum. Þetta á jafnt við um opinbera aðila s.s. sveitarfélög sem ferðaþjónustufyrirtæki af öllum stærðum.
Ég hef haldið því fram að markviss og skilvirk áætlun í markaðsmálum sé órjúfanlegur þáttur í stefnumótun ferðamála á öllum stigum. Þetta segir okkur að nauðsynlegt er að skipuleggja markaðsmálin samhliða öðrum áhrifaþáttum og vanda sérstaklega skipulag og verkstjórn svo verkefnin komist á framkvæmdastig.
Endurmat og eftirfylgni aðgerðaáætlunar eru þeir þættir sem þurfa að vera undir stöðugu eftirliti, til að ráðrúm skapist til að aðlaga og breyta skipulaginu eftir síbreytilegum aðstæðum á markaði. Þetta er gert á grundvelli stefnumarkandi áætlanagerðar (e. Strategic Planning) sem er í eðli sínu umbreytanlegt ferli – í stöðugu endurmati og þróun eftir aðstæðum.
Við megum alls ekki aðskilja áætlun í markaðsmálum / stefnumótun í ferðamálum og skipulagt markaðsstarf, þ.e. vinna MARKAÐSÁÆTLUN MEÐ TILHEYRANDI AÐGERÐAÁÆTLUN, sem gjarnan er skipt í áfanga eftir áhersluröð og mikilvægi.
Sjá nánar: http://www.norema.is